Fimmtudagur, 11. janúar 2007
Ágætu lesendur
Á þessum kosningavetri vil ég nota þetta tækifæri til að vara fólk við því að kjósa Vinstri græna. Margir kunna að kjósa þá vegna stefnu þeirra í umhverfismálum og er það vel skiljanlegt, sumsé þetta græna í þeim.
Hins vegar er hinn parturinn, þ.e. þetta Vinstri, eitthvað sem ber að varast eins og heitan eldinn.
Fólk er aldrei of oft minnt á þær sögulegu staðreyndir sem hryllingur vinstri villunar hefur leitt af sér.
Fyrir þá sem enn efast mæli ég með bókinni Kommúnisminn e. Richard Pipes. Hún fæst í bóksölu Vefþjóðviljans á andriki.is. Ég var rétt í þessu að panta hana og ætla að fræðast meira um þessa vinstri vitleysu. Gæti komið sér vel í kosningabaráttunni sem er framundan til að klekkja á andstæðingunum.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 18.1.2007 kl. 10:20 | Facebook

RSS áskrift
villivill
bennih
oxford
station
jamesblond
sigurdurkari
jarnskvisan
birgir
fridjon
vak
hannesgi
arnim
saevarg
stefani
gislifreyr
kristjanvalgeir
nosejob
heimssyn
ses
sigmarg
arnih
stebbifr
hsb
sveiflan
ea
kiddi
baldur
ingvar
hvala
dabbi
dagga
olinn
svenni
johannalfred
gunnardofri
maggaelin
hallgrimurxd
ingo
zumann
hlynur
kolbrunb
ingabesta
doj
stefaniasig
georgb
kosningar
urkir
borgar
einsidan
eyverjar
arnljotur
malacai
atliy
brandarar
dansige
erla
gotusmidjan
heimirh
jonvalurjensson
sjalfstaedi
Athugasemdir
Já þetta er þörf ábending hjá þér ef Vinstri grænir hefðu verið við stjórn í Garðabæ eða Allaballanir eins og þeir hétu þá væri lítið um einkafyrirtæki í bænum allur einka rekstur er á móti þeirra skapi og bærinn ekki svipur hjá sjón, stefna þeira í umhverfismálum er ekki heilsteypt, aðeins verið á atkvæðaveiðum ég hef aldrei séð þessa flokksmenn vera upp í skórægt eða gera neit í umhverfismálum við kvæðið er alltaf það sama það á einhver annar að gera það ekki við og láta aðra borg.
Græni liturin þeirra er tekin af melonu 1%grænt 99% að innan.
Rauða Ljónið, 8.1.2007 kl. 15:13
Já þetta er þörf ábending hjá þér ef Vinstri grænir hefðu verið við stjórn í Garðabæ eða Allaballanir eins og þeir hétu þá væri lítið um einkafyrirtæki í bænum allur einka rekstur er á móti þeirra skapi og bærinn væri ekki svipur hjá sjón ef þeir hefði verið þar við stjórn, stefna þeira í umhverfismálum er ekki heilsteypt, aðeins verið á atkvæðaveiðum ég hef aldrei séð þessa flokksmenn vera upp í skórægt eða gera neit í umhverfismálum við kvæðið er alltaf það sama það á einhver annar að gera það ekki við og láta aðra borg.
Græni liturin þeirra er tekin af melonu 1%grænt 99% rautt að innanRauða Ljónið, 8.1.2007 kl. 15:17
Mikið rétt hjá þér. Vinstri grænir eru einnig þekktir fyrir að styðja jöfnuð. Ég leyfi mér hins vegar að efast um að mörg Vinstri græn gefi þeim efnaminni meira af launum sínum en skatturinn tekur og útdeilir með tekjujöfnuði. Þau vilja nefnilega frekar beita valdi til þess með skattahækkunum.
Sumir þingmanna þeirra eru duglegir við að lista laun og eignir á vefsíðum sínum en ég hef hingað til ekki séð að neinn þeirra gefi í "samtök launajöfnuðar". Þetta eru nefninlega elítukommar líkt og þekktust í Sovétríkjunum.
Ólafur Örn Nielsen, 8.1.2007 kl. 15:25
Ég hef heyrt alltof margar sögur hvernig "fyrirmyndaríki Kommunista" Austur- Þýskalands virkaði sem og hvað sameiningin var rosalega kostnaðarsöm út af hruni samfélagsins í gamla kommúnistaríkinu til þess nokkurn tímann kjósa eitthvað sem kennir sig við kommúnista.
Hallgrimur Viðar Arnarson, 11.1.2007 kl. 15:41
Ég hef nú ekki lesið þessa bók, út frá forsíðunni álýkta ég hins vegar að hún fjalli um Kommúnismann í Sovétríkjunum. Ég á persónulega mjög bágt með að ná tenginunni við VG??
En nú þekki ég þig ekki, þ.a. þessi færsla er e.t.v. hið mesta grín?
Arnaldur S (IP-tala skráð) 12.1.2007 kl. 13:25
Málið er einfalt, Kommúnisminn stenst ekki enda er áherslan lögð á stéttlaust samfélag og allir jafnir. Einmitt hvergi annars staðar í veröldinni er meiri stéttaskipting eins og í kommúnistaríkjum.
Að mínu mati eru skoðanir Steingríms J og félaga á mörgum málefnum tímaskekkja og það er einnig óþolandi að vinstri grænir þykjast hafa fundið upp umhverfisstefnuna! Því fer víðs fjarri.
Áfram Ísland!
Svavar Friðriksson, 13.1.2007 kl. 13:15
Áhugavert, ertu með einhver rök, önnur en kommúnistagrýluna ? Sérstaklega í ljósi þess að það er nú ekki margir kommúnistar sem styðja VG.
Síðan er áhugavert að þú sért að mæla með bók sem þú hefur ekki einu sinni lesið.
Fræðingur, 13.1.2007 kl. 22:07
Og er hægri vitleysan eitthvað skárri?
Gunni (IP-tala skráð) 14.1.2007 kl. 00:44
mér finnst svo gaman að skoða texta með fallegum litum :)
gaman að sjá ungan strák vanda sig í framsetningu -
ég er viss um að grunnskólakennarinn þinn gefi þér broskall og fína einkunn.
þrátt fyrir stafsetningarvillur...
rökvillur...
og að þú hafir ekki einu sinni haft fyrir því að lesa einu heimildina þína...
já fallegir litir geta gert svo margt!
Jón Örn (IP-tala skráð) 16.1.2007 kl. 20:32
Ég hafði nú ekki hugsað mér að svara þessum misvönduðu kommentum en neyðist til þess þegar umræðan er komin niður á leikskólaplanið. Það er naumast hvað sumir geta orðið uppstökkir af svo skemmtilegri færslu.
Fræðingur: Þrátt fyrir að vinstri grænir aðhyllist ekki þann kommúnisma sem þekktist í sóvétríkjunum þá er enn býsna margt sammerkt með þessum stefnum. Fyrir um ári síðan lét Ögmundur Jónasson þau orð falla í útvarpsviðtali að hann vildi óska þess að allir hefðu sömu laun.
Gunni: Auðvitað er Hægri vitleysan skárri. Hún er mun betri.
Jón Örn: Já það er líka gaman af því að þú kunnir að fara inn á vefinn. Maður á þínu þroskastigi, sko þig. Vertu nú ekki svona vitlaus að halda því fram að þessi bók sé eina heimild mín fyrir vinstri villunni. Það er meira að segja sagt frá henni í grunnskólum! Ég fyrirgef þér þó barnaskapinn þar sem þú hefur tæplega gengið í gegnum hann.
Þó ég hafi ekki lesið bókina þá sé ég ekkert að því að mæla með því að fólk kaupi hana. Hef heyrt góða hluti um efni þessarar bókar. Jakob Ásgeirsson sagði stuttlega frá bókinni í fyrirlestri sem ég sótti í sumar og leyfi ég mér því að segja hér frá henni.
Ólafur Örn Nielsen, 17.1.2007 kl. 08:39
,,Fyrir þá sem enn efast mæli ég með bókinni Kommúnisminn e. Richard Pipes. "
,,Fyrir þá sem eru feitir mæli ég með herbalife - en ég hef aldrei prufað það"
Óli minn við skulu ekki vera með æsing í tengslum við þessa skemmtilegu færslu, reyndu frekar að fræða mig. Búðu til nýja færslu með lista af heimildum um þessa ,,hryllinga" og við getum lesið þær á meðan við drekkum ,,köffin" okkar með smá ,,mjólkum" útí.
Jón Örn Arnarson (IP-tala skráð) 17.1.2007 kl. 10:17
Haha þú ert svo sorglegur að það er varla þess virði að svara þér. Að þú skulir nenna að eyða tíma þínum í að atast yfir málfarsvillu. Þú ættir að geta andað léttar því hryllingar hafa nú orðið að hrylling.
Eins og ég sagði áður þá sé ég ekkert að því að mæla með því að fólki kaupi ákveðna bók þó svo ég hafi ekki lesið hana. Ég sat fyrirlestur sem fjallaði um efni bókarinnar og get því mælt með henni.
Ég skal síðan skrifa færslu fyrir þig um ,,hryllingarnar" þegar ég hef lesið 100 blaðsíður í bókinni, einmitt þann blaðsíðufjölda sem einn maður þarf að hafa lesið í bók til þess að geta mælt með henni.
Ólafur Örn Nielsen, 18.1.2007 kl. 09:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.